Kafli 43 Loðskinn og loðskinnsgervi; framleiðsla úr þeim
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
43. KAFLI
Loðskinn og loðskinnsgervi; framleiðsla úr þeim
Athugasemdir:
1. Hvarvetna í tollskránni er með loðskinnum, þó ekki óunnum loðskinnum í nr. 4301, átt við hvers konar dýrahúðir eða dýraskinn sem hafa verið sútuð eða verkuð með hárum eða ull á.
2. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Fuglshamir eða hlutar af fuglshömum með tilheyrandi fjöðrum eða dún (nr. 0505 eða 6701). |
| b. | Óunnar húðir eða skinn, með hárum eða ull á, í 41. kafla (sbr. c-lið 1. athugasemdar við þann kafla). |
| c. | Hanskar, [belgvettlingar og vettlingar]1 úr leðri og loðskinni eða úr leðri og loðskinnsgervi (nr. 4203). |
| d. | Vörur í 64. kafla. |
| e. | Höfuðfatnaður eða hlutar til hans í 65. kafla. |
| f. | Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður). |
3. Nr. 4303 tekur til loðskinna og hluta af þeim, samsettra með viðbót annarra efna, og loðskinna og hluta af þeim, sem saumuð hafa verið saman sem fatnaður eða hlutar eða fylgihlutir fatnaðar eða í formi annarra vara.
4. Fatnaður og fylgihlutir (þó ekki það sem frávísað er í 2. athugasemd), fóðrað með loðskinni eða loðskinnsgervi, eða með loðskinni eða loðskinnsgervi á ytra byrði, þó ekki aðeins sem leggingar til skrauts, skal flokkað í nr. 4303 eða 4304 eftir atvikum.
5. Hvarvetna í tollskránni er með loðskinnsgervi átt við sérhverja eftirlíkingu loðskinns úr ull, hári eða öðrum trefjum sem eru límdar eða saumaðar á leður, ofinn dúk eða annað efni, en tekur ekki til loðskinnslíkis sem framleitt er með vefnaði eða prjóni (venjulega nr. 5801 eða 6001).
1 Sbr. a-lið 30. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).
4301
Óunnin loðskinn (þar með talið hausar, skott, skæklar og aðrir hlutar eða afskurður, nothæft til feldskurðar), þó ekki óunnar húðir eða skinn í nr. 4101, 4102 eða 4103:
Hleður tollskrárnúmerum...
4302
Sútuð eða verkuð loðskinn (þar með talið hausar, skott, skæklar og aðrir hlutar eða afskurður), ósamansett eða samansett (án annarra viðbótarefna), þó ekki vörur í nr. 4303:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4303
Fatnaður, fylgihlutir og aðrar vörur úr loðskinni:
Hleður tollskrárnúmerum...
4304
Loðskinnsgervi og vörur úr því:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir