Flokkur 08 Óunnar húðir og skinn, leður, loðskinn og vörur úr þeim; reiðtygi og aktygi; ferðabúnaður, handtöskur og áþekkar hirslur; vörur úr dýraþörmum (þó ekki silkiormaþörmum)

Kafli 42 Vörur úr leðri; reiðtygi og aktygi; ferðabúnaður, handtöskur og áþekkar hirslur; vörur úr dýraþörmum (þó ekki silkiormaþörmum)

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

42. KAFLI
Vörur úr leðri; reiðtygi og aktygi; ferðabúnaður, handtöskur og áþekkar hirslur; vörur úr dýraþörmum (þó ekki silkiormaþörmum)

 

Athugasemdir:

1.      Sem leður í þessum kafla telst einnig þvottaskinn (einnig hvítt þvottaskinn), lakkleður (patent), lagskipað lakkleður (laminated) og málmhúðað leður (metallised).

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Dauðhreinsað girni til læknisaðgerða eða áþekkt dauðhreinsað seymi (nr. 3006).

b.      Fatnaður og hlutir sem honum heyra til (þó ekki hanskar, belgvettlingar og vettlingar), fóðrað með loðskinni eða loðskinnsgervi eða með loðskinni eða loðskinnsgervi á ytra byrði, þó ekki aðeins sem leggingar til skrauts (nr. 4303 eða 4304).

c.      Uppsettar vörur úr neti (nr. 5608).

d.      Vörur í 64. kafla.

e.      Höfuðfatnaður eða hlutar til hans í 65. kafla.

f.       Svipur, keyri eða aðrar vörur í nr. 6602.

g.      Ermahnappar, armbönd eða glysvarningur (nr. 7117).

h.      Búnaður eða leggingar til skrauts á aktygi, eins og ístað, mél, skildir og sylgjur, fram­vísað aðskildu (venjulega flokkur XV).

ij.      Strengir, skinn fyrir trumbur eða þess háttar eða aðrir hljóðfærahlutar (nr. 9209).

k.      Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1]).

l.       Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).

m.     Hnappar, þrýstitölur, smellur, smelluhnappar, hnappamót eða önnur efni og hlutar til þessara vara, hnappaefni, í nr. 9606.

3.      A.     Auk þess sem leiðir af 2. athugasemd hér að framan tekur nr. 4202 ekki til eftirfarandi:

a.   Skjóður úr þynnum úr plasti, einnig áprentaðar, með höldum, ekki hannaðar til lengri nota (nr. 3923).

b.   Vörur úr fléttiefnum (nr. 4602).

          B.     Vörur í nr. 4202 og 4203 sem í eru hlutar úr góðmálmi, málmi klæddum góðmálmi, náttúrlegum eða ræktuðum perlum eða eðalsteinum eða hálfeðalsteinum (náttúrlegum, syntetískum eða endurgerðum) flokkast í þessa vöruliði jafnvel þótt slíkir hlutar feli í sér meira en minni háttar búnað eða skreytingar, enda séu þessir hlutar ekki einkennandi fyrir vörurnar. Ef hlutarnir eru hins vegar einkennandi fyrir vörurnar flokkast þær í 71. kafla.

4.      Sem fatnaður og fylgihlutir í nr. 4203 teljast m.a. hanskar, belgvettlingar og vettlingar (þar með talið til íþrótta eða hlífðar), svuntur og önnur hlífðarföt, axlabönd, belti, axlarólar og armbönd, þó ekki úrarmbönd (nr. 9113).


[1] Sbr. 32. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

4201
Reiðtygi og aktygi fyrir hvers konar dýr (þar með talið dráttarólar, ólar, hnéhlífar, mýli, söðulklæði, hnakktöskur, hundaklæði og þess háttar), úr hvers konar efni:

Hleður tollskrárnúmerum...

4202
Ferðakoffort, ferðatöskur, snyrtitöskur, skjalatöskur, skjalaveski, skólatöskur, gleraugnahulstur, sjónaukahylki, myndavélatöskur, hljóðfæratöskur, byssuhylki, byssuhulstur og áþekkar vörur; ferðaskjóður, einangraðar matar- eða drykkjartöskur, snyrtiveski, bakpokar, handtöskur, innkaupatöskur, veski, pyngjur, kortaveski, vindlingaveski, tóbakspungar, verkfæratöskur, íþróttatöskur, flöskuhylki, skartgripaskrín, púðurdósir, hnífaparaöskjur og áþekkar vörur, úr leðri eða samsettu leðri, úr þynnum úr plasti, spunaefni, vúlkaníseruðum trefjum eða pappa eða að öllu leyti eða aðallega hjúpað slíkum efnum eða pappír:
Athugasemdir
Sbr. e-lið 29. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

4203
Fatnaður og fylgihlutir, úr leðri eða samsettu leðri:

Hleður tollskrárnúmerum...

4205
Aðrar vörur úr leðri eða samsettu leðri:

Hleður tollskrárnúmerum...

4206
Vörur úr þörmum (þó ekki silkiormaþörmum), gullsláttarhimnum, blöðrum eða sinum:

Hleður tollskrárnúmerum...