Kafli 41 Óunnar húðir og skinn (þó ekki loðskinn) og leður
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
41. KAFLI
Óunnar húðir og skinn (þó ekki loðskinn) og leður
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
| a. | Afklippur eða áþekkur úrgangur úr óunnum húðum eða skinnum (nr. 0511). |
| b. | Fulgshamir eða hlutar af fuglshömum með tilheyrandi fjöðrum eða dún í nr. 0505 eða 6701. |
| c. | Húðir eða skinn, með hárum eða ull, óunnið, sútað eða verkað (43. kafli). Til 41. kafla teljast þó óunnar húðir og skinn, með hárum eða ull, af nautgripum (þar með taldir vísundar), af dýrum af hrossaætt, af sauðfé (þó ekki astrakan, breiðdindla, karakúl, persían og áþekk lambaskinn, indversk, kínversk, móngólsk eða tíbesk lambaskinn), af geitum og kiðlingum (þó ekki yemensk, mongólsk, og tíbesk geita- og kiðlingaskinn), af svínum (þar með talin moskussvín), gemsum, gasellum, [úlföldum (þar með taldir drómedarar)]3, hreindýrum, elgum, dádýrum, krónhjörtum og hundum. |
[2.
A. Til nr. 4104-4106 teljast ekki húðir og skinn sem fengið hafa sútunarmeðferð (þar með talið forsútunarmeðferð) sem snúa má við (nr. 4101-4103 eftir atvikum).
B. Með orðinu krust í nr. 4104-4106 er átt við húðir og skinn sem hafa verið eftirsútuð, lituð eða fituvætt (fyllt) fyrir þurrkun.]1
3. Hvarvetna í tollskránni er með samsettu leðri einungis átt við vörur þær sem nefndar eru í nr. [4115.]2
1 Sbr. a-lið 28. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001)
2 Sbr. b-lið 28. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001)
3 Sbr. a-lið 37. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
4101
Óunnar húðir og skinn af dýrum nautgripa- (þar með taldir vísundar) eða hrossaættar (nýtt, eða saltað, þurrkað, kalkað, pæklað eða varið skemmdum á annan hátt til geymslu, en ekki sútað, verkað sem bókfell eða frekar unnið), einnig afhárað eða klofið:
Hleður tollskrárnúmerum...
4102
Óunnin skinn af sauðfé (nýtt, eða saltað, þurrkað, kalkað, pæklað eða varið skemmdum á annan hátt, en ekki sútað, verkað sem bókfell eða frekar unnið), einnig með ull eða klofið, þó ekki það sem undan er skilið samkvæmt c-lið 1. athugasemdar við þennan kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
4103
Aðrar óunnar húðir og skinn (nýtt, eða saltað, þurrkað, kalkað, pæklað eða varið skemmdum á annan hátt, en ekki sútað, verkað sem bókfell eða frekar unnið), einnig afhárað eða klofið, þó ekki það sem undan er skilið samkvæmt b- eða c-lið 1. athugasemdar við þennan kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
4104
Húðir og skinn af dýrum nautgripa- (þar með taldir vísundar) eða hrossaættar, sútað eða krustað, hárlaust, einnig klofið, en ekki frekar unnið:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4105
Skinn af kindum eða lömbum, sútuð eða krustuð, án ullar, einnig klofin en ekki frekar unnin:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4106
Húðir og skinn af öðrum dýrum, sútuð eða krustuð, án ullar eða hára, einnig klofin, en ekki frekar unnin:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4107
Leður frekar unnið eftir sútun eða krustun, þar með talið leður verkað sem bókfell, af dýrum nautgripa- (þar með taldir vísundar) eða hrossaættar, án hára, einnig klofið, þó ekki leður í nr. 4114:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4112
Leður frekar unnið eftir sútun eða krustun, þar með talið leður verkað sem bókfell, af kindum eða lömbum, án ullar, einnig klofið, þó ekki leður í nr. 4114
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4113
Leður frekar unnið eftir sútun eða krustun, þar með talið leður verkað sem bókfell, af öðrum dýrum, án ullar eða hára, einnig klofið, þó ekki leður í nr. 4114:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4114
Þvottaskinn (þar með talið hvítt þvottaskinn); lakkleður og lagskipað lakkleður; málmhúðað leður:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4115
Samsett leður að meginstofni úr leðri eða leðurtrefjum, í spjöldum, blöðum eða ræmum, einnig í rúllum; afklippur og annar úrgangur leðurs eða samsetts leðurs, óhæft til framleiðslu á leðurvörum; leðurdust, leðurduft og leðurmjöl:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir