Kafli 40 Gúmmí og vörur úr því
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
40. KAFLI
Gúmmí og vörur úr því Athugasemdir:
1. Leiði ekki annað af orðalagi tollskrárinnar er með gúmmíi átt við eftirtaldar vörur, einnig vúlkaníseraðar eða hertar: Náttúrlegt gúmmí, balata, gúttaperka, guayule, chicle og áþekkar náttúrlegar gúmkvoður, syntetískt gúmmí, faktis unnið úr olíum, og þessi efni endurunninn.
2. Til þessa kafla telst ekki:
a. Vörur í flokki XI (spunaefni og spunavörur). b. Skófatnaður og hlutar til hans í 64. kafla. c. Höfuðfatnaður og hlutar til hans (þar með taldar baðhettur) í 65. kafla. d. Vélræn eða rafknúin tæki eða hlutar til þeirra í flokki XVI (þar með taldar hvers konar rafmagnsvörur) úr harðgúmmíi. e. Vörur í 90., 92., 94. eða 96. kafla. f. Vörur í 95. kafla (þó ekki íþróttahanskar, belgvettlingar og vettlingar og vörur í nr. 4011-4013).]1
3. Sem frumgerðir í nr. 4001-4003 og 4005 teljast eingöngu vörur í neðangreindu ástandi:
a. Vökvar og deig (þar með talið latex, einnig forvúlkaníserað og aðrar dreifur og upplausnir).
b. Blokkir óreglulegrar lögunar, klumpar, ballar, duft, grjón, mylsna og í áþekkri lausri mynd.
4. Sem syntetískt gúmmí í 1. athugasemd við þennan kafla og í nr. 4002 telst:
a. Ómettuð syntetísk efni sem með vúlkaníseringu með brennisteini má óumvendanlega breyta í ósveigjanleg efni sem við 18-29 °C má teygja í þrefalda upprunalega lengd sína án þess að þau slitni og eftir að þau hafa verið teygð í tvöfalda upprunalega lengd sína, dragast saman innan fimm mínútna þannig að þau verði ekki yfir ein og hálf upphafleg lengd sín. Vegna prófana þessara má bæta í efnum sem nauðsynleg eru til þverbindingar, eins og vaka til vúlkaníseringar eða hvata. Einnig mega vera til staðar efni eins og kveðið er á um í [2. og 3. tölulið B-liðar 5.]2 athugasemdar. Þó mega ekki vera til staðar nein efni sem ekki eru nauðsynleg til þverbindingar, eins og þynnir, mýkiefni og fylliefni. b. Tíóplast (TM). c. Náttúrlegt gúmmí ummyndað með ágræðslu eða blöndun við plastefni, affjölliðað náttúrlegt gúmmí og blöndur af ómettuðum syntetískum efnum með mettuðum syntetískum háfjölliðum, enda uppfylli allar framangreindar vörur þau skilyrði varðandi vúlkaníseringu, teygjanleika og samdráttarhæfni sem um getur í a-lið að ofan.
5.
[A.]3
Til nr. 4001 og 4002 telst ekki gúmmí eða gúmmíblöndur sem hafa verið blandaðar, fyrir eða eftir storknun, með:
1. vúlkaníserandi efnum, hvötum, lötum eða vökum (þó ekki íblöndunarefnum til framleiðslu á forvúlkaníseruðu gúmmílatexi); 2. dreifulitum eða öðrum litarefnum, þó ekki efnum sem eingöngu er bætt í til auðkenningar; 3. mýkiefnum eða þynnum (nema jarðolíu þegar um er að ræða olíuþynnt gúmmí), fyllum, styrkingarefnum, lífrænum leysiefnum eða hvaða öðrum efnum en þeim sem leyfð eru samkvæmt [B-lið]4. [B.]5 Þrátt fyrir að neðangreind efni sé að finna í gúmmíi eða gúmmíblöndum hefur það ekki áhrif á flokkun þess í nr. 4001 eða 4002, eftir því sem við á, enda haldi slíkt gúmmí eða gúmmíblöndur megineinkennum sínum sem hráefni:
1. Ýruefni (emulsifiers) eða hrindiefni (anti-tack agents). 2. Smáskammtar af leysiefnum úr ýruefnum. 3. Mjög litlir skammtar af eftirfarandi: Hitanæm efni (venjulega til að fá hitanæmt gúmmílatex), bakskauts-yfirborðsvirkt efni (venjulega til að fá raf-jákvætt gúmmílatex), mótoxari (anti-oxidant), hleypiefni, myljuefni, frostvari, mettiefni, varnarefni, varðveisluefni, seigjustýriefni eða áþekk íbætiefni til sérstakra nota.
6. Sem úrgangur, afskurður og rusl í nr. 4004 telst gúmmíúrgangur, -fráskurður og -rusl frá framleiðslu eða vinnslu úr gúmmíi og gúmmívörum sem öldungis er ónothæft sem slíkt vegna skurðar, slits eða af öðrum ástæðum.
7. Þráður að öllu leyti úr vúlkaníseruðu gúmmíi með hvers konar þverskurðarmáli yfir 5 mm flokkast sem ræma, stöng eða prófíll sem telst til nr. 4008.
8. Til nr. 4010 teljast belti eða reimar fyrir færibönd eða drifbúnað úr spunadúk sem er gegndreyptur, húðaður, hjúpaður eða lagskipaður með gúmmíi, eða úr spunagarni eða spunasnúru, gegndreypt, húðað, hjúpað eða klætt gúmmíi.
9. Sem plötur, blöð og ræmur í nr. 4001, 4002, 4003, 4005 og 4008 teljast einungis plötur, blöð og ræmur og blokkir reglulegt að lögun, óskorið eða aðeins skorið í rétthyrnda lögun (þar með talið ferningslaga), einnig að gerð sem tilbúnar vörur, og einnig áprentað eða yfirborðsunnið á annan hátt, en ekki skorið í aðra lögun eða frekar unnið.
Sem stengur og prófílar í nr. 4008 teljast einungis slíkar vörur, einnig skornar í lengdir eða yfirborðsunnar en ekki unnar á annan hátt.
1 Sbr. a-lið 27. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).
2 Sbr. a-lið 36. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
3 Sbr. b-lið 36. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
4 Sbr. b-lið 36. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
5 Sbr. b-lið 36. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda , gildistökudagur 1. janúar 2007).
4001
Náttúrlegt gúmmí, balata, gúttaperka, guayule, chicle og áþekkar náttúrlegar gúmkvoður, í frumgerðum eða í plötum, blöðum eða ræmum:
Hleður tollskrárnúmerum...
4002
Syntetískt gúmmí og faktis fengið úr olíum, í frumgerðum eða í plötum, blöðum eða ræmum; hvers konar blöndur vara í nr. 4001 við hvaða vöru sem er í þessum vörulið, í frumgerðum eða í plötum, blöðum eða ræmum:
Hleður tollskrárnúmerum...
4003
Endurunnið gúmmí, í frumgerðum eða í plötum, blöðum eða ræmum:
Hleður tollskrárnúmerum...
4004
Úrgangur, afskurður og rusl úr gúmmíi (þó ekki harðgúmmí) og duft og korn úr því
Hleður tollskrárnúmerum...
4005
Blandað (compounded) gúmmí, óvúlkaníserað, í frumgerðum eða í plötum, blöðum eða ræmum:
Hleður tollskrárnúmerum...
4006
Annað form (t.d. stengur, pípur og prófílar) og vörur (t.d. skífur og hringir), úr óvúlkaníseruðu gúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4007
Þræðir og snúrur úr vúlkaníseruðu gúmmíi
Hleður tollskrárnúmerum...
4008
Plötur, blöð, ræmur, stengur og prófílar, úr vúlkaníseruðu gúmmíi, þó ekki harðgúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4009
Slöngur, pípur og hosur, úr vúlkaníseruðu gúmmíi, þó ekki harðgúmmíi, með eða án tengihluta (t.d. tengi, hné, múffur):
Hleður tollskrárnúmerum...
4010
Belti eða reimar fyrir færibönd eða drifbúnað, úr vúlkaníseruðu gúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4011
Nýir lofthjólbarðar, úr gúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4012
Sólaðir eða notaðir lofthjólbarðar úr gúmmíi; gegnheilir eða púðahjólbarðar, hjólbarðaslitfletir og -felgubönd, úr gúmmíi:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4013
Hjólbarðaslöngur, úr gúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4014
Vörur til heilsuverndar eða lækninga (þar með taldar túttur) úr vúlkaníseruðu gúmmíi, þó ekki harðgúmmíi, einnig með tengihlutum úr harðgúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4015
Fatnaður og hlutar til hans (þar með taldir hanskar, belgvettlingar og vettlingar5), til hvers konar nota, úr vúlkaníseruðu gúmmíi, þó ekki harðgúmmíi:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
4016
Aðrar vörur úr vúlkaníseruðu gúmmíi, þó ekki harðgúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
4017
Harðgúmmí (t.d. ebónít) í öllum myndum, einnig úrgangur og rusl; vörur úr harðgúmmíi:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir