Kafli 39 Plast og vörur úr því
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
KAFLI
Plast og vörur úr því
Athugasemdir:
1. Hvarvetna í tollskránni tekur plast til þeirra efna í nr. 3901-3914 sem hægt er eða hefur verið, annað hvort við fjölliðun (polymerisation) eða á síðari stigum, að forma við ytri áhrif (venjulega hita og þrýsting, með upplausnarefnum eða mýkiefnum sé það nauðsynlegt) með mótun, steypusmíði, útdrætti, völsun eða annarri aðferð í þá lögun sem helst þegar ytri áhrifum léttir.
Hvarvetna í tollskránni tekur plast einnig til vúlkaníseraðra trefja. Hugtakið tekur þó ekki til efna sem teljast spunaefni í flokki XI.
2. Til þessa kafla telst ekki:
a. Smurefni í nr. 2710 eða 3403.
b. Vax í nr. 2712 eða 3404.
c. Aðgreind kemískt skýrgreind lífræn sambönd (29. kafli).
d. Heparín eða sölt þess (nr. 3001).
e. Lausnir (þó ekki kollodíum) þeirra efna sem tilgreind eru í nr. 3901-3913 í rokgjörnum upplausnarefnum , enda sé upplausnarefnið meira en 50% lausnarinnar miðað við þunga (nr. 3208); prentþynnur í nr. 3212.
f. Lífræn yfirborðsvirk efni eða framleiðsla í nr. 3402.
g. Uppleysanleg gúmkvoða eða estergúmkvoða (nr. 3806).
h. Tilbúin íblöndunarefni fyrir jarðolíur (þar með talið bensín) eða fyrir aðra vökva sem notaðir eru í sama tilgangi og jarðolía (nr. 3811).
ij. Tilbúnir vökvar fyrir vökvabúnað að megistofni úr polýglúkól, silikon eða öðrum fjölliðum í 39. kafla (nr. 3819).
k. Prófefni á plastgrunni til greininga eða fyrir rannsóknastofur (nr. 3822)
l. Syntetískt gúmmí eins og það er skýrgreint í 40. kafla eða vörur úr því.
m. Reiðtygi eða aktygi (nr. 4201) eða koffort, ferðatöskur, handtöskur eða aðrar hirslur í nr. 4202.
n. Fléttur, tágasmíði eða aðrar vörur í 46. kafla.
o. Veggfóður í nr. 4814.
p. Vörur í flokki XI (spunaefni og spunavörur).
q. Vörur í flokki XII (t.d. skófatnaður, höfuðfatnaður, regnhlífar, sólhlífar, göngustafir, svipur, keyri eða hlutar til þeirra).
r. Glysvarningur í nr. 7117.
s. Vörur í flokki XVI (vélar og vélræn eða rafknúin tæki).
t. Hlutar til loftfara eða ökutækja í flokki XVII.
u. Vörur í 90. kafla (t.d. optískar vörur, gleraugnaumgjarðir, teikniáhöld).
v. Vörur í 91. kafla (t.d. klukku- eða úrkassar).
w. Vörur í 92. kafla (t.d. hljóðfæri eða hlutar til þeirra).
x. Vörur í 94. kafla (t.d. húsgögn, [ljós og ljósabúnaður][1], ljósaskilti, forsmíðaðar byggingar).
y. Vörur í 95. kafla (t.d. leikföng, leikspil, íþróttabúnaður).
[z. Vörur í 96. kafla (t.d. burstar, hnappar, rennilásar, greiður, pípumunnstykki, vindlingamunnstykki eða þess háttar, hlutar til hitabrúsa eða þess háttar, pennar, skrúfblýantar og einfætur, tvífætur og þrífætur og áþekkar vörur).][2]
3. Til nr. 3901-3911 teljast einungis vörur sem framleiddar hafa verið með kemískri samsetningu og falla undir neðangreinda flokka:
a. Fljótandi syntetísk pólyólefín sem minna en 60% miðað við rúmmál þéttist við 300 °C eftir breytingu í 1013 millibör þegar þétt er við lækkaðan þrýsting (nr. 3901 og 3902).
b. Resín, ekki háfjölliðuð, af kúmaronindengerð (nr. 3911).
c. Aðrar syntetískar fjölliður með a.m.k. 5 einliðum að meðaltali.
d. Silíkon (nr. 3910).
e. Resól (nr. 3909) og aðrar forfjölliður.
4. Sem samfjölliður teljast allar fjölliður ef engin ein einliðaeining í þeim er 95% eða meira af heildarfjölliðuinnihaldinu miðað við þyngd.
Leiði ekki annað af orðalagi í þessum kafla skulu samfjölliður (þ.m.t. samfjölþéttur, samfjölaukar, blokksamfjölliður og grósamfjölliður) og fjölliðublendi flokkast í þann vörulið sem tekur til fjölliða þeirrar sameinliðueiningar sem mest er af miðað við þyngd sérhverrar annarrar einstakrar sameinliðueiningar. Grunnsameinliðueiningar samfjölliða sem teljast til sama vöruliðar skulu samkvæmt þessari athugasemd teknar saman.
Ef engin ein sameinliðueining ríkir skulu samfjölliður eða fjölliðublendi, eftir því sem við á, flokkast í þann vörulið sem síðastur er í röð þeirra sem að jöfnu koma til greina.
5. Kemískt umbreyttar fjölliður, þ.e. þær sem aðeins eru liður í aðalfjölliðukeðjunni og hefur verið breytt með kemísku hvarfi, skulu flokkast í þann vörulið sem á við óumbreyttu fjölliðuna. Þetta ákvæði tekur ekki til grósamfjölliða.
6. Sem frumgerðir í nr. 3901-3914 telst aðeins eftirfarandi:
a. Vökvar og deig, þ.m.t. dreifur (þeytur og sviflausnir) og lausnir.
b. Blokkir óreglulegrar lögunar, klumpar, duft (þ.m.t. mótaduft), korn, flögur og í áþekku lausu formi.
7. Til nr. 3915 telst ekki úrgangur, afklippur og rusl úr einu hitadeigu (thermoplastic) efni sem breytt hefur verið í frumgerðir (nr. 3901-3914).
8. Sem slöngur, pípur og hosur í nr. 3917 teljast holar vörur, einnig hálfunnar eða fullunnar, sem almennt eru notaðar til að flytja, leiða eða dreifa lofttegundum eða vökva (t.d. rifflaðar garðslöngur, gataðar slöngur). Þessi skýrgreining tekur einnig til pylsuhólka og flathólka. Þær sem hafa annað innra þversnið en hringlaga, sporöskjulaga, rétthyrningslaga (þar sem lengdin er ekki meiri en 1,5 föld breiddin) eða eru í lögun sem reglulegir fjölhliðungar, aðrar en síðastnefndir hólkar, skulu þó ekki teljast slöngur, pípur og hosur heldur prófílar.
9. Sem veggfóður úr plasti í nr. 3918 teljast vörur í rúllum, ekki minna en 45 cm að breidd, til vegg- eða loftskreytinga, úr plasti sem fest er varanlega á bakgrunn úr hvers konar efni öðru en pappír, enda sé plastlagið (á yfirborði) æðótt, upphleypt, litað, mynsturprentað eða skreytt á annan hátt.
10. Sem plötur, blöð, himnur, þynnur og ræmur í nr. 3920 og 3921 teljast einungis plötur, blöð, himnur, þynnur og ræmur (þó ekki í 54. kafla) og blokkir reglulegrar rúmfræðilegrar lögunar, einnig prentað eða yfirborðsunnið á annan hátt, ósniðið eða sniðið í rétthyrnda lögun (þar með talið ferningar) en ekki frekar unnið (einnig þótt vörurnar þannig sniðnar verði að vörum sem tilbúnar eru til notkunar).
11. Nr. 3925 tekur einungis til neðangreindra vara sem ekki eru vörur í einhverjum fyrri vörulið í undirkafla II:
a. Geymar, tankar (þar með taldar rotþrær), ker og áþekk ílát, með meira en 300 l rúmtaki.
b. Mannvirkjahlutar til nota t.d. í gólf, veggi, þil, loft eða þök.
c. Rennur og hlutar til þeirra.
d. Hurðir, gluggar og karmar til þeirra og þröskuldar í dyr.
e. Svalir, brjóstrið, girðingar, hlið og áþekkir tálmar.
f. Hlerar, gluggahlerar (þar með talin rimlagluggatjöld) og áþekkar vörur og hlutar og tengi til þeirra.
g. Stórhillur til samsetningar og varanlegrar uppsetningar, t.d. í verslanir, verkstæði, vörugeymslur.
h. Byggingahlutar til skreytingar, t.d. rifflasúlur, þakhjálmar, fuglaskjól.
ij. Tengihlutir og undirstöður ætlað til varanlegrar uppsetningar í eða á dyr, glugga, tröppur, veggi eða aðra byggingarhluta, t.d. hnúðar, handföng, krókar, knegti, handklæðaslár, rofaplötur og aðrar plötur til verndar.
Athugasemdir við undirliði:
1. Í sérhverju númeri þessa kafla skulu fjölliður (þar með taldar samfjölliður) og kemískt umbreyttar fjölliður flokkast samkvæmt eftirfarandi ákvæðum:
a. Þegar fyrir hendi er undirliður nefndur ,,Annað¿ í sömu röð:
1. Skráning fjölliðu í undirlið með forskeytinu ,,póly¿ (t.d. pólyetylen og pólyamíd-6,6) þýðir að grunneinliðueining eða einliðueiningar hinnar nefndu fjölliðu teknar saman verða að leggja til 95% eða meira af heildarfjölliðuinnihaldinu miðað við þyngd.
[2. Samfjölliður nefndar í undirliðum nr. 3901.30, 3901.40, 3903.20, 3903.30 og 3904.30 flokkast í þessa undirliði að því tilskildu að sameinliðueiningar hinna nefndu samfjölliða leggi til 95% eða meira af heildarfjölliðuinnihaldi miðað við þyngd.][3]
3. Kemískt umbreyttar fjölliður flokkast í undirlið sem nefndur er ,,Annað¿ að því tilskildu að hinar kemískt umbreyttu fjölliður séu ekki tilgreindar nánar í öðrum undirlið.
4. Fjölliður sem ekki falla undir 1., 2. eða 3. hér að framan flokkast í þann undirlið, af þeim undirliðum sem eftir eru í röðinni, sem tekur til fjölliða þeirrar einliðueiningar sem mest er af miðað við þyngd sérhverrar annarrar einstakrar sameinliðueiningar. Í þessu skyni skulu grunneinliðueiningar fjölliða sem teljast til sama undirliðar teknar saman. Aðeins skulu bornar saman grunnsameinliðueiningar fjölliða í þeirri röð undirliða sem til athugunar er.
b. Þegar ekki er fyrir hendi undirliður nefndur ,,Annað¿ í sömu röð:
1. Fjölliður flokkast í þann undirlið sem tekur til fjölliða þeirrar einliðueiningar sem mest er af miðað við þyngd sérhverrar annarrar einstakrar sameinliðueiningar. Í þessu skyni skulu grunneinliðueiningar fjölliða sem teljast til sama undirliðar teknar saman. Aðeins skulu bornar saman grunnsameinliðueiningar fjölliða í þeirri röð undirliða sem til athugunar er.
2. Kemískt umbreyttar fjölliður flokkast í þann undirlið sem tekur til óumbreyttu fjölliðunnar.
Fjölliðublendi flokkast í sama undirlið og fjölliður úr sömu einliðueiningum í sama mæli.
2. Sem mýkiefni í nr. 3920.43 teljast einnig endurunnin mýkiefni.
[1] Sbr. 30. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.
[2] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
[3] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).
3901
Fjölliður etylens, í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3902
Fjölliður própylens eða annarra ólefína, í frum-gerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3903
Fjölliður styrens, í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3904
Fjölliður vinylklóríðs eða önnur halógenólefín, í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3905
Fjölliður vinylacetats eða annarra vinylestera, í frumgerðum; aðrar fjölliður vinyls í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3906
Fjölliður akryls í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3907
Pólyacetöl, aðrir pólyeterar og epoxíðresín, í frum-gerðum; pólykarbónöt, alkyðresín, pólyallylesterar og aðrir pólyesterar, í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3908
Pólyamíð í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3909
Amínóresín, fenólresín og pólyúretön, í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3910
Sílikon í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3911
Jarðolíuresín, kúmarónindenresín, pólyterpen, pólysúlfíð, pólysúlfón og aðrar vörur tilgreindar í 3. athugasemd við þennan kafla, í frumgerðum, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
3912
Sellulósi og kemískar afleiður hans, ót.a., í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3913
Náttúrlegar fjölliður (t.d. algínsýra) og umbreyttar náttúrlegar fjölliður (t.d. hert próteín, kemískar af-leiður náttúrlegs gúmmís), ót.a., í frumgerðum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3914
Jónskiptar að meginstofni úr fjölliðum í nr. 3901-3913, í frumgerðum eða minna:
Hleður tollskrárnúmerum...
3915
Úrgangur, afklippur og rusl, úr plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3916
Einþáttungar sem hvarvetna eru yfir 1 mm í þvermál, stengur, stafir og prófílar, einnig yfirborðsunnið en ekki unnið á annan hátt, úr plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3917
Slöngur, pípur og hosur og tengihlutar til þeirra (t.d. tengi, hné, flansar), úr plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3918
Gólfefni úr plasti, einnig sjálflímandi, í rúllum eða sem flísar; veggfóður úr plasti, eins og það er skýrgreint í 9. athugasemd við þennan kafla:
Hleður tollskrárnúmerum...
3919
Sjálflímandi plötur, blöð, filmur, himnur, bönd, ræmur og annað flatt, úr plasti, einnig í rúllum:
Hleður tollskrárnúmerum...
3920
Aðrar plötur, blöð, filmur, himnur og ræmur, úr plasti, ekki með holrúmi, styrkingu, lagskiptingu, bakgrunn eða á hliðstæðan hátt í sambandi við önnur efni:
Hleður tollskrárnúmerum...
3921
Aðrar plötur, blöð, filmur, himnur og ræmur, úr plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3922
Baðker, sturtubaðker, vaskar, handlaugar, skolskálar, salernisskálar, -setur og -lok, vatnsgeymar til að skola niður og áþekk hreinlætistæki, úr plasti:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3923
Varningur til flutnings eða pökkunar á vörum, úr plasti; tappar, lok, hettur og annar lokunarbúnaður, úr plasti:
Hleður tollskrárnúmerum...
3924
Borðbúnaður, eldhúsbúnaður, önnur búsáhöld og hreinlætis- eða baðbúnaður, úr plasti:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
3925
Smíðavörur til bygginga úr plasti, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
3926
Aðrar vörur úr plasti og vörur úr efnum í nr. 3901-3914:
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir