Flokkur 05 Vörur úr steinaríkinu

Kafli 27 Eldsneyti úr steinaríkinu, jarðolíur og efni eimd úr þeim; jarðbiksefni; jarðvax

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

27. KAFLI
Eldsneyti úr steinaríkinu, jarðolíur og efni eimd úr þeim;
jarðbiksefni; jarðvax

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Aðgreind kemískt skýrgreind lífræn efnasambönd, önnur en hreint metan og própan sem flokkast í nr. 2711.

b.      Lyf sem teljast til nr. 3003 eða 3004.

c.      Blöndur, ómettuð kolvatnsefni í nr. 3301, 3302 eða 3805.

2.      Sem jarðolíur og olíur fengnar úr tjörukenndum steinefnum í nr. 2710 teljast ekki aðeins jarðolíur og olíur fengnar úr tjörukenndum steinefnum, heldur einnig áþekkar olíur, auk þeirra sem eru aðallega úr blönduðum ómettuðum kolvatnsefnum, án tillits til fram­leiðsluaðferðar, ef þungi óarómatísku efnisþáttanna er meiri en þungi hinna arómatísku.

             Skýrgreiningin tekur þó ekki til fljótandi syntetískra pólíólefína sem minna en 60% miðað við rúmmál eimast við 300 °C eftir breytingu í 1013 millibör þegar þétt er við lækkun þrýstings (39. kafli).

3.      Sem úrgangsolíur í nr. 2710 telst úrgangur sem að mestu leyti er úr jarðolíum og olíum fengnum úr tjörukenndum steinefnum (sem lýst er í 2. athugasemd við þennan kafla), einnig blandaður vatni.  Þetta á við um:

a.      slíkar olíur sem ekki eru lengur hæfar til notkunar sem frumvara (t.d. notuð smurolía, notaðar olíur fyrir vökvabúnað og notaðar olíur fyrir straumbreyta),

b.      olíudreggjar frá geymslutönkum fyrir jarðolíur, sem aðallega innihalda slíkar olíur og hátt hlutfall íblöndunarefna (t.d. kemískra efna) sem notuð er við framleiðslu frumvörunnar, og

c.      slíkar olíur í formi vatnsþeytu eða vatnsblöndu sem myndast hefur við olíuleka, þvott á geymslutönkum eða notkun skurðarolíu í vélsmíði.

 

Athugasemdir við undirliði:

1.      Sem gljákol í nr. 2701.11 teljast kol með mörk rokgjarnra efna (miðað við steinefnalaust þurrefnisinnihald) 14% eða minna.

2.      Sem bikkend steinkol í nr. 2701.12 teljast kol með mörk rokgjarnra efna (miðað við stein­efnalaust þurrefnisinnihald) meira en 14% og varmagæfni (miðað við steinefnalaust rakt innihald) sem sé jafnmikil eða meiri en 5,833 kcal/kg.

3.      Sem bensól (bensen), tólúól (tólúen), xýlól (xýlen) og naftalín í nr. 2707.10, 2707.20, 2707.30 og 2707.40 telst vara sem inniheldur miðað við þyngd meira en 50% af bensóli, tólúeni, xýleni eða naftalíni.

[4.      Sem þunnar olíur og blöndur í nr. 2710.12 teljast olíur og blöndur sem eimast 90% eða meira miðað við rúmmál (þar með talin rýrnun) við 210 °C samkvæmt ISO-staðli 3405 (jafngildir ASTM-D-86-aðferðinni).][1]

[5.      Sem lífdísilolía (biodiesel) í undirliðum nr. 2710 teljast monoalkylesterar úr fitusýrum sem notuð er sem eldsneyti, unnin úr dýra-, jurta eða örverufitu eða -ólíum, einnig notuðum.][2]


5.      Sem lífdísilolía (biodiesel) í vörulið 2710 teljast mono-alkyl esterar úr fitusýrum sem notað er sem eldsneyti, unnið úr feiti eða olíum úr dýra- eða jurtaríkinu, einnig notuðum.


[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 20. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

2701
Steinkol; töflur, völur og áþekkt fast eldsneyti unnið úr steinkolum:

Hleður tollskrárnúmerum...

2702
Brúnkol, einnig mótuð, þó ekki svartaraf:

Hleður tollskrárnúmerum...

2703
Mór (þar með talin mómylsna), einnig mótaður
Athugasemdir
Sbr. b-lið 23. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

2704
Kox og hálfkox úr steinkolum, brúnkolum eða mó, einnig mótað; gaskox

Hleður tollskrárnúmerum...

2705
Kolagas, koxgas, iðnaðargas og áþekkt gas, annað en jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni

Hleður tollskrárnúmerum...

2706
Tjara eimuð úr steinkolum, brúnkolum eða mó, og önnur jarðtjara, einnig vatnssneydd eða eimuð að hluta, þar með talin endurunnin tjara

Hleður tollskrárnúmerum...

2707
Olíur og aðrar vörur framleiddar með eimingu úr háhita koltjöru; áþekkar vörur þar sem þungi arómatískra efnisþátta er meiri en óarómatískra efnisþátta:

Hleður tollskrárnúmerum...

2708
Bik og bikkox, fengið úr koltjöru eða annarri jarðtjöru:

Hleður tollskrárnúmerum...

2709
Jarðolíur og olíur fengnar úr tjörukenndum steinefnum, óunnar

Hleður tollskrárnúmerum...

2710
Jarðolíur og olíur fengnar úr tjörukenndum steinefnum, þó ekki óunnar; framleiðsla sem í er miðað við þyngd 70% eða meira af jarðolíum eða olíum fengnum úr tjörukenndum steinefnum, ót.a. enda séu þessar olíur grunnþáttur framleiðslunnar; úrgangsolíur:
Athugasemdir
Vöruliður 2710 ásamt tollskrárnúmerum orðist, sbr. e-lið 18. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2711
Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni:

Hleður tollskrárnúmerum...

2712
Vaselín; paraffín, örkristallað jarðolíuvax, kolavax, ósókerít, brúnkolavax, móvax, annað jarðefnavax, og áþekkar vörur fengnar með efnasmíð eða öðrum aðferðum, einnig litað:

Hleður tollskrárnúmerum...

2713
Jarðolíukox, jarðolíubítumen og aðrar leifar úr jarðolíum eða olíum úr bikkenndum steinefnum:

Hleður tollskrárnúmerum...

2714
Jarðbik og asfalt, náttúrlegt; bítúmen- eða olíuleir og tjörusandur; asfaltít og asfaltsteinn:

Hleður tollskrárnúmerum...

2715
Bítúmenblöndur að meginstofni úr náttúrlegu asfalti, náttúrlegu bítúmeni, jarðolíubítúmeni, jarðtjöru eða jarðtjörubiki (t.d. bikkenndri kvoðu"cut backs")

Hleður tollskrárnúmerum...

2716
Rafmagn

Hleður tollskrárnúmerum...