Kafli 26 Málmgrýti, gjall og aska
Athugasemdir flokks
Engar athugasemdir
Athugasemdir kafla
26. KAFLI
Málmgrýti, gjall og aska
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla telst ekki:
a. Gjall eða áþekkur iðnaðarúrgangur, unninn sem mulningur (nr. 2517).
b. Náttúrlegt magnesíumkarbónat (magnesít), einnig brennt (nr. 2519).
c. Dreggjar úr geymslutönkum fyrir jarðolíur, sem að mestu leyti eru úr þess háttar olíum (nr. 2710).
d. Tómasgjall er telst til 31. kafla.
e. Gjallull, steinull eða önnur áþekk ull úr steinefnum (nr. 6806).
f. Úrgangur eða rusl úr góðmálmi eða málmi klæddum góðmálmi; annar úrgangur eða rusl sem inniheldur góðmálm eða góðmálmssambönd, aðallega notað til endurheimtu góðmálms [(nr. 7112 eða 8549)][1].
g. Kopar-, nikkil- eða kóbaltsteinn framleiddur við hvers konar bræðslu (flokkur XV).
2. Sem málmgrýti í nr. 2601-2617 teljast steinefni sem notuð eru í málmiðnaði til vinnslu á kvikasilfri, málmum í nr. 2844 eða málmum í flokki XIV eða XV, einnig þótt þau séu til annars en málmvinnslu. Nr. 2601-2617 taka hins vegar ekki til steinefna sem hafa sætt meðferð sem ekki getur talist venjuleg í málmiðnaði.
3. Nr. 2620 tekur aðeins til:
a. Gjalls, ösku og leifa sem notaðar eru í iðnaði, annað hvort til málmvinnslu eða til framleiðslu á kemískum málmsamböndum, þó ekki til ösku og leifa frá sorpbrennslu bæjar- og sveitarfélaga (nr. 2621), og
b. gjalls, ösku og leifa sem í er arsenik, einnig með málminnihaldi, til notkunar við vinnslu á arseniki eða málmum eða til framleiðslu á kemískum samböndum þeirra.
Athugasemdir við undirliði:
1. Sem dreggjar af blýbensíni og blýkenndum efnasamböndum til varnar gegn vélabanki í nr. 2620.21 teljast dreggjar úr geymslutönkum fyrir blýbensín og blýkennd efnasambönd til varnar gegn vélabanki (t.d. tetraetylblý) sem eru að meginhluta úr blýi, blýsamböndum og járnoxíði.
2. Gjall, aska og leifar, sem í er arsenik, kvikasilfur, tallíum eða blöndur þeirra, til notkunar við vinnslu á arseniki eða þessum málmum eða til framleiðslu á kemískum samböndum þeirra skulu flokkast í nr. 2620.60.
[1] Sbr. 19. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
2601
Járngrýti og járnkirni, þar með talið brennt járnkís:
Hleður tollskrárnúmerum...
2602
Mangangrýti og mangankirni, þar með talið járnblandað mangangrýti og mangankirni sem inniheldur 20% eða meira af mangan miðað við þyngd þurrefnis
Hleður tollskrárnúmerum...
2603
Kopargrýti og koparkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2604
Nikkilgrýti og nikkilkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2605
Kóbaltgrýti og kóbaltkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2606
Álgrýti og álkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2607
Blýgrýti og blýkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2608
Sinkgrýti og sinkkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2609
Tingrýti og tinkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2610
Krómgrýti og krómkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2611
Wolframgrýti og wolframkirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2612
Úrangrýti eða þóríumgrýti og kirni þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
2613
Mólýbdengrýti og mólýbdenkirni:
Hleður tollskrárnúmerum...
2614
Títangrýti og títankirni
Hleður tollskrárnúmerum...
2615
Níóbíum-, tantal-, vanadín- eða sírkongrýti og kirni þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
2616
Góðmálmsgrýti og góðmálmskirni:
Hleður tollskrárnúmerum...
2617
Annað málmgrýti og málmkirni:
Hleður tollskrárnúmerum...
2618
Kvarnað gjall (gjallsandur) frá járn- eða stálframleiðslu
Hleður tollskrárnúmerum...
2619
Gjall, sindur (þó ekki kvarnað gjall), hrúður og annar úrgangur frá járn- eða stálframleiðslu
Hleður tollskrárnúmerum...
2620
Gjall, aska og leifar (þó ekki frá járn- eða stálframleiðslu) sem í er arsenik, málmar eða sambönd þeirra:
Hleður tollskrárnúmerum...
2621
Annað gjall og önnur aska, þar með talin þangaska (kelp); aska og leifar frá sorpbrennslu bæjar- og sveitarfélaga:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir