Flokkur 05 Vörur úr steinaríkinu

Kafli 25 Salt; brennisteinn; mold og steintegundir; gipsefni, kalk og sement

Athugasemdir flokks

Engar athugasemdir

Athugasemdir kafla

25. KAFLI
Salt; brennisteinn; mold og steintegundir; gipsefni, kalk og sement

 

Athugasemdir:

1.      Leiði ekki annað af 4. athugasemd við þennan kafla eða af orðalagi vöruliða þessa kafla teljast til þeirra aðeins óunnar vörur eða vörur sem hafa verið þvegnar (einnig með kemískum efnum til þess að ná burtu óhreinindum án þess að vörurnar breyti eðli sínu), muldar, malaðar, í duftformi, rifnar, sáldaðar, sigtaðar, kjarnaðar með fleytingu, segulgrei­ningu eða öðrum vélrænum eða fysískum aðferðum (þó ekki kristöllun), en ekki vörur sem hafa verið ristaðar, brenndar, blandaðar eða meðfarnar frekar en tilgreint er í einstökum vöruliðum.

Í vörum í þessum kafla mega vera viðbætt rykvarnarefni, enda leiði slík íblöndun ekki til þess að varan verði fremur til sérstakra en almennra nota.

2.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Brennisteinn, þurreimdur, útfelldur eða hlaupkenndur (nr. 2802).

b.      Jarðlitir sem innihalda járnsambönd að jafngildi minnst 70% miðað við þyngd af Fe2O3 (nr. 2821).

c.      Lyf eða aðrar vörur í 30. kafla.

d.      Ilmvörur, snyrtivörur eða hreinlætisvörur (33. kafli).

[e.       Dólómítrammablanda (ramming mix) (nr. 3816).]

[f.][1]    Steinar og hellur til gatna- og gangstéttargerðar (nr. 6801); mósaíkteningar eða þess hátt­ar (nr. 6802); þak-, vegg- og rennuefni úr flögusteini (nr. 6803).

[g.][2]    Eðalsteinar og hálfeðalsteinar (nr. 7102 eða 7103).

[h.][3]   Ræktaðir kristallar (þó ekki optískar vörur) úr natríumklóríði eða magnesíumoxíði, í nr. 3824, 2,5 g að þyngd eða meira hver einstakur kristall; optískar vörur úr natríumklóríði eða magnesíumoxíði (nr. 9001).

[ij.][4]   Knattborðskrít (nr. 9504).

[k.][5]   Rit- eða teiknikrít eða klæðskerakrít (nr. 9609).

3.      Vörur sem flokkanlegar eru í nr. 2517 og einhvern annan vörulið kaflans skulu flokkaðar í nr. 2517.

4.      Til nr. 2530 teljast m.a.: Vermikúlít, perlusteinn og klórít, óþanið; jarðlitir, einnig brenndir eða blandaðir innbyrðis; náttúrlegur járngljásteinn; merskúm (einnig í slípuðum stykkjum); raf; plötur, stengur, stafir o.þ.h. sem gert er úr mótuðu en ekki frekar unnu merskúmi eða rafi; svartaraf (jet); strontíanít (einnig brennt), þó ekki strontíumoxíð; brot úr leirvöru, múrsteini eða steinsteypu.


[1] Sbr. 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[2] Sbr. 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[3] Sbr. 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[4] Sbr. 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

[5] Sbr. 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022.

2501
Salt (þar með talið matarsalt og mengað salt) og hreint natríumklóríð, einnig í vatnsupplausn eða með viðbættu efni til að hindra kekkjun eða tryggja flæði; sjór:

Hleður tollskrárnúmerum...

2502
Brennisteinskís, óbrenndur

Hleður tollskrárnúmerum...

2503
Brennisteinn hvers konar, þó ekki þurreimdur, útfelldur eða hlaupkenndur

Hleður tollskrárnúmerum...

2504
Náttúrlegt grafít:

Hleður tollskrárnúmerum...

2505
Náttúrlegur sandur hvers konar, einnig litaður, þó ekki málmsandur í 26. kafla:

Hleður tollskrárnúmerum...

2506
Kvarts (þó ekki náttúrlegur sandur); kvartsít, einnig grófhöggvið eða einungis sagað eða hlutað sundur með öðrum hætti, í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur:

Hleður tollskrárnúmerum...

2507
Kaólín og annar postulínsleir, einnig brenndur

Hleður tollskrárnúmerum...

2508
Annar leir (þó ekki þaninn leir í nr. 6806), andalúsít, kyanít og sillímanít, einnig brennt; múllít; chamotte eða dínasleir:

Hleður tollskrárnúmerum...

2509
Krít

Hleður tollskrárnúmerum...

2510
Náttúrleg kalsíumfosföt, náttúrleg álkalsíumfosföt og fosfatrík krít:

Hleður tollskrárnúmerum...

2511
Náttúrlegt baríumsúlfat (barít); náttúrlegt baríumkarbónat (witherít), einnig brennt, þó ekki baríumoxíð í nr. 2816:

Hleður tollskrárnúmerum...

2512
Kísilsalli (t.d. kísilgúr, trípolít og díatómít) og áþekk kísilsýrurík jarðefni, einnig brennt, með eðlisþyngd 1 eða minna:

Hleður tollskrárnúmerum...

2513
Vikur; smergill; náttúrlegt kórúnd, náttúrlegt granat og önnur náttúrleg slípiefni, einnig hitameðfarin:

Hleður tollskrárnúmerum...

2514
Flögusteinn, einnig grófhöggvinn eða einungis sagaður eða hlutaður sundur með öðrum hætti í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur

Hleður tollskrárnúmerum...

2515
Marmari, travertín, ekussín og annar kalksteinn til höggmyndagerðar eða bygginga með eðlisþyngd 2,5 eða meira og mjólkursteinn, einnig grófhöggvið eða einungis sagað eða hlutað sundur með öðrum hætti í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur:

Hleður tollskrárnúmerum...

2516
Granít, porfyr, basalt, sandsteinn og annar steinn til höggmyndagerðar eða bygginga, einnig grófhöggvið eða einungis sagað eða hlutað sundur með öðrum hætti í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur:

Hleður tollskrárnúmerum...

2517
Steinvölur, möl, brotinn eða mulinn steinn, sem venjulega er notað sem íblöndunarefni í steinsteypu, slitlag á vegi eða fyrir járnbrautir eða annað undirlag, fjörumöl og tinna, einnig hitameðfarið; mulningur úr gjalli, sindri eða öðrum áþekkum iðnaðarúrgangi, einnig blandað efnum þeim sem nefnd eru í upphafi vöruliðarins; tjöruborinn mulningur; korn, flísar og duft úr steinum í nr. 2515 eða 2516, einnig hitameðfarið:

Hleður tollskrárnúmerum...

2518
Dólómít, einnig brennt eða glætt, þar með talið dólómít grófhöggvið eða einungis sagað eða hlutað sundur með öðrum hætti í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur:
Athugasemdir
Sbr. b-lið 18. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

2519
Náttúrlegt magnesíumkarbónat (magnesít); brædd magnesía; glædd magnesía, einnig blönduð litlu magni af öðru oxíði fyrir glæðingu; annað magnesíumoxíð, einnig hreint:

Hleður tollskrárnúmerum...

2520
Gips; anhydrít; gipsefni (úr brenndu gipsi eða kalsíumsúlfati), einnig litað, með eða án hvata eða lata í litlu magni:

Hleður tollskrárnúmerum...

2521
Kalksteinsflux; kalksteinn og annar kalkkenndur steinn sem notaður er til framleiðslu á kalki eða sementi:

Hleður tollskrárnúmerum...

2522
Brennt kalk, leskjað kalk og hydrólískt kalk, þó ekki kalsíumoxíð og kalsíumhydroxíð í nr. 2825:

Hleður tollskrárnúmerum...

2523
Portlandsement, álsement, slaggsement, súpersúlfatsement og áþekkt hydrólískt sement, einnig litað eða sem sementsgjall:

Hleður tollskrárnúmerum...

2524
Asbest:
Athugasemdir
Sbr. e-lið 21. tl. 1. gr auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2007

Hleður tollskrárnúmerum...

2525
Gljásteinn, þar með taldar gljásteinsflögur; gljásteinsúrgangur:

Hleður tollskrárnúmerum...

2526
Náttúrlegt steatít, einnig grófhöggvið eða einungis sagað eða hlutað sundur á annan hátt í rétthyrningslaga (þar með talið ferningslaga) blokkir eða hellur; talk:
Athugasemdir
Vöruliður 2527 fellur brott, sbr. c-lið 16. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001). Tollskrárnúmer 2530.4000 fellur brott, sbr. d-lið 16. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

2528
Náttúrleg bóröt og kirni þeirra (einnig brennd), þó ekki bóröt unnin úr náttúrlegum saltupplausnum; náttúrleg bórsýra sem í er 85% eða minna af H3BO3 miðað við þurrefnið
Athugasemdir
Sbr. 19. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins dags. 15.desember 2011, gildistökudagur 1. janúar 2012.

Hleður tollskrárnúmerum...

2529
Feldspat; levsít; nefelín og nefelínsýenít; flússpat:

Hleður tollskrárnúmerum...

2530
Jarðefni, ót.a.:

Hleður tollskrárnúmerum...