Flokkur 03 Dýra-, jurta- og örverufeiti og -olíur og klofningsefni þeirra; unnin matarfeiti; dýra- eða jurtavax

Kafli 15 Dýra-, jurta- og örverufeiti og -olíur og klofningsefni þeirra; unnin matarfeiti; dýra- eða jurtavax

Athugasemdir flokks


Sbr. a-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
 
Athugasemdir kafla

15. KAFLI
[Dýra-, jurta- og örverufeiti og -olíur og klofningsefni þeirra; unnin matarfeiti; dýra- eða jurtavax]
[1]

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Svínafita eða alifuglafita í nr. 0209.

b.      Kakaósmjör, feiti eða olía (nr. 1804).

c.      Ætar blöndur sem innihalda miðað við þyngd meira en 15% af vörum í nr. 0405 (venjulega 21. kafli).

d.      Hamsar (nr. 2301) eða leifar í nr. 2304-2306.

e.      Feitisýrur, unnið vax, lyf, málning, lökk, sápa, ilmvörur, snyrtivörur eða hreinlætisvörur, súlfóneraðar olíur eða aðrar vörur í flokki VI.

f.       Faktis, unnið úr olíum (nr. 4002).

2.      Til nr. 1509 teljast ekki olíur sem unnar eru úr ólífum með upplausn (nr. 1510).

3.      Til nr. 1518 telst ekki feiti eða olíur eða þættir þeirra, sem aðeins hefur verið mengað, og flokka skal í sama vörulið og samsvarandi ómenguð feiti og olíur og þættir þeirra.

4.      Sápufótur, olíufótur og -dreggjar, sterínbik, glyserólbik og ullarfeitibik telst til nr. 1522.


[Athugasemdir við undirliði.][2]

 

[1.      Sem jómfrúarólífuolía í undirlið 1509.30 telst olía sem er án sýruinnihalds, sem nefnd er olíusýra, sem ekki er meira en 2.0 g/100 g og hægt er aðgreina frá öðrum jómfrúarólífuolíu­tegundum samkvæmt þeim eiginleikum sem gefnir eru upp í Codex Alimentarius Standard 33-1981.[3]

 

[2.][4]   Sem repju- eða kolsaolía með lágt erúsínsýrustig í nr 1514.11 og 1514.19 teljast órokgjarnar olíur sem innihalda minna en 2% miðað við þyngd af erúsínsýru (erucic acid).




[1] Sbr. 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

 

[2] Sbr. 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

 

[3] Sbr. 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

 

[4] Sbr. 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

 

1501
Svínafeiti (þar með talin hreinsuð svínafeiti (lard)) og alifuglafeiti, þó ekki vörur í nr. 0209 eða 1503:
Athugasemdir
Sbr. a-lið 13. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins dags. 15.desember 2011, gildistökudagur 1. janúar 2012.

Hleður tollskrárnúmerum...

1502
Fita af dýrum af nautgripaætt, kindum eða geitum, þó ekki vörur í nr. 1503:

Hleður tollskrárnúmerum...

1503
Svínafeitisterín, svínaolía, tólgarsterín, oleóolía og tólgarolía, ekki gert að fleyti, eða unnið á annan hátt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1504
Feiti og olíur og þættir þeirra, úr fiski eða sjávarspendýrum, einnig hreinsuð en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1505
Ullarfeiti og feitiefni unnin úr henni (þar með talið lanólín)
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 1505.1000 og 1505.9000 falla brott, sbr. b-lið 11. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

1506
Önnur dýrafeiti og -olíur og þættir þeirra, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1507
Sojabaunaolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1508
Jarðhnetuolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1509
Ólífuolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1510
Aðrar olíur og þættir þeirra, unnið eingöngu úr ólífum, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega um¬breytt, þar með taldar blöndur þessara olía eða þátta og olía og þátta í nr. 1509:
Athugasemdir
Sbr. f-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1511
Pálmaolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1512
Olía úr fræi sólblóma, körfublóma eða baðmullar og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1513
Kókoshnetu-, pálmakjarna- eða babassúolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1514
Repju-, kolsa- eða mustarðsolía og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1515
Önnur dýra-, jurta- og örverufeiti og -olía (þar með talin jójóbaolía) og þættir hennar, einnig hreinsað en ekki efnafræðilega umbreytt:
Athugasemdir
Sbr. g-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1516
Dýra-, jurta- og örverufeiti og -olíur og klofningsefni þeirra, hert að fullu eða að hluta, víxlesterað, enduresterað eða elaídínerað, einnig hreinsað en ekki frekar unnið:
Athugasemdir
Sbr. h-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1517
Smjörlíki; ætar blöndur eða -ramleiðsla úr dýra-, jurta- eða örverufeiti eða -olíum eða þáttum úr mismunandi feiti eða olíum í þessum kafla, þó ekki æt feiti og olíur eða þættir þeirra í nr. 1516:
Athugasemdir
Sbr. j-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1518
Dýra-, jurta- og örverufeiti og -olíur og klofningsefni þeirra, soðið, oxað, vatnssneytt, brennisteinsborið, blásið, fjölliðað með hita í lofttómi eða í eðalgasi eða efnafræðilega umbreytt með öðrum hætti, þó ekki það sem er í nr. 1516; óætar blöndur eða framleiðsla úr dýra-, jurta- eða örverufeiti eða -olíum eða úr þáttum úr mismunandi feiti eða olíum þessa kafla, ót.a
Athugasemdir
Sbr. k-lið 8. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

1520
Glýseról (glýserín), hrátt; glýserólvatn og glýserollútur

Hleður tollskrárnúmerum...

1521
Jurtavax (annað en tríglýseríð), býflugnavax, annað skordýravax og hvalaraf, einnig hreinsað eða litað:

Hleður tollskrárnúmerum...

1522
Degras; leifar sem falla til við meðferð á feitiefnum eða dýra- eða jurtavaxi

Hleður tollskrárnúmerum...