Kafli 14 Fléttiefni úr jurtaríkinu; vörur úr jurtaríkinu, ót.a.
Athugasemdir flokks
Vörur úr jurtaríkinu
Athugasemdir kafla
Fléttiefni úr jurtaríkinu; vörur úr jurtaríkinu, ót.a.
1. Til þessa kafla teljast ekki eftirtaldar vörur sem skulu flokkast í flokk XI: Jurtaefni eða trefjar úr jurtaefnum á hvaða vinnslustigi sem er, aðallega notað til framleiðslu á spunaefnum, eða önnur jurtaefni sem hafa sætt þeirri meðferð að þau verða aðeins notuð sem spunaefni.
2. Til nr. 1401 teljast m.a. bambus (einnig klofinn, sagaður eftir endilöngu eða í lengdir, ávalaður á endum, bleiktur, gerður óeldfimur, fágaður eða litaður), klofinn körfuviður, reyr og þess háttar, spanskreyrskjarni og flysjaður eða klofinn spanskreyrspálmi. Flöguviður flokkast ekki í þennan vörulið (nr. 4404).
3. [Til nr. 1404 telst ekki viðarull (nr. 4405) og tilbúin knippi eða vöndlar til framleiðslu á sópum eða burstum (nr. 9603).]1
1Sbr. a-lið 14. tl.1. gr. auglýsingar nr. 142/2006 (A-deild stjórnartíðinda ,gildistökudagur 1. janúar 2007).
1401
Jurtaefni notað aðallega til fléttunar (t.d. bambus, spanskreyrspálmi, reyr, sef, körfuviður, raffíutrefjar, hreinsuð, bleikt eða lituð kornstrá, og linditrefjar):
Hleður tollskrárnúmerum...
1404
Vörur úr jurtaríkinu, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...