Flokkur 02
Vörur úr jurtaríkinu
Kafli 13 Kvoðulakk, gúmkvoða og resín og aðrir jurtasafar og jurtakjarnar
Athugasemdir flokks
FLOKKUR II
Vörur úr jurtaríkinu
Vörur úr jurtaríkinu
Athugasemd:
Sem kögglar í þessum flokki teljast vörur sem hafa verið mótaðar beint með þjöppun eða íblöndun bindiefnis í þeim mæli að það sé að þyngd ekki meira en 3%.
Athugasemdir kafla
13. KAFLI
Kvoðulakk; gúmkvoður, resín og aðrir jurtasafar og jurtakjarnar
Athugasemd:
Til nr. 1302 telst m.a. lakkrískjarni, prestafífilskjarni, humlakjarni, alóekjarni og ópíum.
Til þessa vöruliðar telst ekki: 1 Sbr. a-lið 9.tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).
| a. | Lakkrískjarni sem inniheldur meira en 10% súkrósa, miðað við þyngd, eða tilreiddur er sem sykurvara (nr. 1704). |
| b. | Maltkjarni (nr. 1901). |
| c. | Kjarnar úr kaffi, tei eða maté (nr. 2101). |
| d. | Jurtasafar eða jurtakjarnar sem teljast áfengar drykkjarvörur (22. kafli). |
| e. | Kamfóra, glycyrrhizin eða aðrar vörur í nr. 2914 eða 2938. |
| [f. | Seyði úr valmúahálmi sem inniheldur ekki minna en 50% miðað við þyngd af alkaloíðum (nr. 2939).]1 |
| g. | Lyf í nr. 3003 eða 3004 eða prófefni til blóðflokkunar (nr. 3006). |
| h. | Sútunar- eða litunarkjarni (nr. 3201 eða 3203). |
| ij. | Rokgjarnar olíur, fastar, fljótandi, resínóíð, úrdregin oleóresín, eimað vatn eða vatnsupplausnir úr rokgjörnum olíum eða vörur að meginstofni úr ilmandi efnum til nota við framleiðslu á drykkjarvörum (33. kafli). |
| k. | Náttúrlegt gúmmí, balata, gúttaperka, guayule, chicle eða áþekkar náttúrlegar gúmkvoður (nr. 4001). |
1301
Kvoðulakk; náttúrlegar gúmkvoður; resín, gúmmíharpixar og oleóresín (t. d. balsöm):
Hleður tollskrárnúmerum...
1302
Jurtasafar og jurtakjarnar; pektínefni, pektínöt og pektöt; agar og önnur jurtaslím og hleypiefni, einnig umbreytt, unnið úr vörum úr jurtaríkinu:
Hleður tollskrárnúmerum...