Flokkur 02 Vörur úr jurtaríkinu

Kafli 11 Malaðar vörur; malt; sterkja; inúlín; hveitiglúten

Athugasemdir flokks
FLOKKUR II
Vörur úr jurtaríkinu
 
Athugasemd:
            Sem kögglar í þessum flokki teljast vörur sem hafa verið mótaðar beint með þjöppun eða íblöndun bindiefnis í þeim mæli að það sé að þyngd ekki meira en 3%.
 
Athugasemdir kafla

11. KAFLI
Malaðar vörur; malt; sterkja; inúlín; hveitiglúten
 

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla telst ekki:

a. Brennt malt sem kaffilíki (nr. 0901 eða 2101).
[b. Unnið mjöl, fín- eða grófmalað, klíðislaust korn eða sterkja í nr. 1901.]1
c. Kornflögur (corn flakes) eða aðrar vörur í nr. 1904.
d. Matjurtir, unnar eða varðar skemmdum, í nr. 2001, 2004 eða 2005.
e. Vörur til lækninga (30. kafli).
f. Sterkja sem hefur einkenni ilmvara, snyrtivara eða hreinlætisvara (33. kafli).

 

2. A. Malaðar vörur úr korntegundum sem taldar eru upp í eftirfarandi töflu teljast til þessa kafla ef þær innihalda þurrar, miðað við þyngd þurrefnis:
   
a. Sterkju (sem ákvörðuð er samkvæmt Ewersaðferðinni) í meira magni en tilgreint er í 2. dálki.
b. Ösku (að frádregnum viðbættum steinefnum) í því magni sem tilgreint er í 3. dálki eða minna.

Annars flokkast þær í nr. 2302. Kornfrjóangar, heilir, valsaðir, flagaðir eða malaðir, flokkast þó alltaf í nr. 1104.
  B.

Vörur sem teljast til þessa kafla samkvæmt áðurnefndri skýrgreiningu flokkast í nr. 1101 eða 1102 ef magn þeirra sem fer í gegnum sigti úr ofnum vírdúk, með þeim þéttleika sem tilgreindur er í 4. og 5. dálki, er ekki minna, miðað við þyngd, en sá hundraðshluti sem tilgreindur er fyrir hverja korntegund. Annars flokkast þær í nr. 1103 eða 1104.

 

1    Sbr. a-lið 7. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001). 

1101
Hveiti eða meslínmjöl, fínmalað:

Hleður tollskrárnúmerum...

1102
Mjöl úr korni, fínmalað, annað en úr hveiti eða meslíni:

Hleður tollskrárnúmerum...

1103
Klíðislaust korn, mjöl og kögglar:
Athugasemdir
Undirliðir 1103.12 og 1103.13 ásamt tollskrárnúmerum falla brott, Sbr. b-lið 7. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

1104
Korn unnið á annan hátt (t.d. afhýtt, valsað, flagað, perlað, sneitt eða kurlað), þó ekki rís í nr. 1006; kornfrjóangar, heilir, valsaðir, flagaðir eða malaðir:
Athugasemdir
Undirliðir 1104.11 og 1104.12 ásamt tollskrárnúmerum falla brott, Sbr. e-lið 7. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).

Hleður tollskrárnúmerum...

1105
Mjöl, fín- eða grófmalað, duft, flögur, kurl og kögglar úr kartöflum:

Hleður tollskrárnúmerum...

1106
Mjöl, fín- eða grófmalað, og duft úr þurrkuðum belgávöxtum í nr. 0713, úr sagó eða rótum eða hnýðum í nr. 0714 eða úr vörum í 8. kafla:

Hleður tollskrárnúmerum...

1107
Malt, einnig brennt:

Hleður tollskrárnúmerum...

1108
Sterkja; inúlín:

Hleður tollskrárnúmerum...

1109
Hveitiglúten, einnig þurkað

Hleður tollskrárnúmerum...