Kafli 07 Matjurtir og tilteknar rætur og hnýði
Athugasemdir flokks
Vörur úr jurtaríkinu
Athugasemdir kafla
7. KAFLI
Matjurtir og tilteknar rætur og hnýði
Athugasemdir:
1. Til þessa kafla teljast ekki fóðurvörur í nr. 1214.
2. Sem matjurtir í nr. 0709, 0710, 0711 og 0712 teljast einnig ætir sveppir, tröfflur, ólífur, kapar, grasker, eggaldinjurtir, sykurmaís (Zea mays var. saccharata), ávextir af ættinni Capsicum eða ættinni Pimenta, finkull, steinselja, kerfill, tarragon, kars og sætt majoran (Majorana hortensis eða Origanum majorana).
3. Til nr. 0712 teljast allar þurrkaðar matjurtir sem teljast til nr. 0701-0711, aðrar en:
a. Þurrkaðir belgávextir, afhýddir (nr. 0713).
b. Sykurmaís í því formi sem tilgreint er í nr. 1102-1104.
c. Mjöl, fínmalað og gróft, duft, flögur, kurl og kögglar úr kartöflum (nr. 1105).
d. Mjöl, fínmalað og gróft, og duft úr þurrkuðum belgávöxtum í nr. 0713 (nr. 1106).
4. Þurrkaðir, pressaðir eða malaðir ávextir af ættinni Capsicum eða ættinni Pimenta teljast þó ekki til þessa kafla (nr. 0904).
[5. Til nr. 07.11 teljast matjurtir sem eingöngu hafa verið varðar skemmdum til bráðabirgða vegna flutnings eða geymslu fyrir notkun (t.d. með brennisteinsdíoxíði, í saltlegi, í brennisteinssýrlingi eða í öðrum verndandi upplausnum), enda séu þær áfram óhæfar í því ástandi til manneldis.][1]
0701
Kartöflur, nýjar eða kældar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0702
Tómatar, nýir eða kældir:
Hleður tollskrárnúmerum...
0703
Laukur, skalottlaukur, hvítlaukur, blaðlaukur og aðrar skyldar matjurtir, nýjar eða kældar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0704
Hvítkál, blómkál, hnúðkál, fóðurmergkál og áþekkt ætt kál, nýtt eða kælt:
Hleður tollskrárnúmerum...
0705
Salat (Lactuca sativa) og síkoría (Cichorium spp.), nýtt eða kælt:
Hleður tollskrárnúmerum...
0706
Gulrætur, næpur, rauðrófur, hafursrót, seljurót, radísur og áþekkar ætar rætur, nýjar eða kældar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0707
Gúrkur og reitagúrkur, nýjar eða kældar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0708
Belgávextir, með eða án hýðis, nýir eða kældir:
Hleður tollskrárnúmerum...
0709
Aðrar matjurtir, nýjar eða kældar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0710
Matjurtir (ósoðnar eða soðnar með gufu eða í vatni), frystar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0711
Matjurtir varðar skemmdum til bráðabirgða, en óhæfar í því ástandi til manneldis:
Hleður tollskrárnúmerum...
0712
Þurrkaðar matjurtir, heilar, skornar, sneiddar, muldar eða steyttar í duft, en ekki frekar unnar:
Hleður tollskrárnúmerum...
0713
Þurrkaðir belgávextir, afhýddir, einnig flysjaðir eða klofnir:
Hleður tollskrárnúmerum...
0714
Maníókarót, örvarrót, saleprót, Jerúsalemartískokka, sætar kartöflur og áþekkar rætur og hnýði sem innihalda mikið af sterkju eða inúlíni, nýtt, kælt, fryst eða þurrkað, einnig sneitt eða í kögglum; sagópálmamergur:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir