Kafli 06 Lifandi tré og aðrar plöntur; blómlaukar, rætur og þess háttar; afskorin blóm og lauf til skrauts
Athugasemdir flokks
Vörur úr jurtaríkinu
Athugasemdir kafla
6. KAFLI
Lifandi tré og aðrar plöntur; blómlaukar, rætur og þess háttar;
afskorin blóm og lauf til skrauts
Athugasemdir:
1. Leiði ekki annað af orðalagi síðari hluta nr. 0601 teljast aðeins til þessa kafla lifandi tré og vörur (þar með taldir græðlingar) sem gróðrarstöðvar eða blómaverslanir hafa venjulega á boðstólum til gróðursetningar eða skreytingar. Til kaflans teljast þó ekki kartöflur, matlaukur, skalottlaukur, hvítlaukur eða aðrar vörur í 7. kafla. 2. Til nr. 0603 eða 0604 teljast einnig vendir, blómakörfur, kransar og áþekkar vörur, sem gerðar eru að öllu leyti eða að hluta úr þeim vörum, án tillits til fylgihluta úr öðrum efnum. Til þessara vöruliða teljast þó ekki klippimyndir og áþekkar veggskreytingar í nr. 9701.
Skilgreiningar:
Þessi kafli tekur yfir allar lifandi plöntur sem venjulega eru seldar í garðyrkjustöðvum, garðplöntustöðvum eða blómaverslunum til útplöntunar eða skrauts, svo sem tré, runna, grænmetisplöntur til útplöntunar (hér með taldar lækningajurtir til útplöntunar og síkoríuplöntur og rætur, undanskilið er þó rætur sem falla undir vörulið nr. 1212, þó að þessi vara sé venjulega ekki seld í garðyrkjustöðvum, garðplöntustöðvum eða blómaverslunum).
Kaflinn tekur ekki yfir ávexti og fræ (8. og 12. kafli) og ekki heldur viss hnýði eða lauka (kartöflur, skalottlauk, hvítlauk og aðra matarlauka), sem eru bæði notuð til matar og til útplöntunar (7. kafli).
Sjá nánar í skjalinu skilgreiningar á vörum í 6. kafla tollskrár (pdf 112KB)
0601
Blómlaukar, rótarhnýði, jarðstönglar, krónur og forðastönglar, í dvala, vexti eða blóma; síkoríuplöntur og síkoríurætur, þó ekki síkoríurætur í nr. 1212:
Hleður tollskrárnúmerum...
0602
Aðrar lifandi plöntur (þ.m.t. rætur), græðlingar og gróðurkvistir; sveppþræðir:
Hleður tollskrárnúmerum...
0603
Afskorin blóm og blómknappar sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt:
Hleður tollskrárnúmerum...
0604
Lauf, greinar og aðrir plöntuhlutar, án blóma eða blómknappa og grös, mosi og skófir, sem notað er í vendi eða til skrauts, lifandi, þurrkað, litað, bleikt, gegndreypt eða unnið á annan hátt:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir
Skilgreiningar:
Undir þennan vörulið flokkast blómlaukar, rótarhnýði, jarðstönglar, krónur og forðastönglar líka í pottum, kössum o.s.frv. af m.a. eftirtöldum plöntum. Undir vöruliðinn falla einnig plöntur sem fjölgað er með blómlaukum, rótarhnýðum, jarðstönglum, krónum og forðastönglum, m.a. hnýðisbegóníur og hnýðisdalíur en aðrar tegundir sem fjölgað er með græðlingum (t.d. Begonia Elatior) falla undir 0602 9091:
Alpafjóla (Cyclamen) , riddarastjarna ( Hippeastrum ) , snotrur ( Anemone ) , skáblað ( Begonia ) , indjánakanni ( Canna ) , snæstjarna ( Chionodoxa ) , freyslilja ( Freesia ) , keisarakróna ( Fritillaria ) , fuglamjólkurjurtir ( Ornithogalum ) , glæsifífill ( Dahlia ) , sverðlilja, sumargull (Gloxinia), goðalilja (Hyacint), íris ( Iris ) , dverglilja ( Crocus ) , liljur ( lilium ) , dalalilja ( Convallaria ) , Montbretia , páskaliljur ( Narcissus ) , sóleyjar ( Ranunculus ) , Richardia , smæra ( Oxalis ) , kleópötrunál ( Eremurus ) , Polianthes , túlípanar og vetrargosi ( Galanthus ) .
Undir vöruliðinn flokkast einnig blómlaukar, rótarhnýði, jarðstönglar, krónur og forðastönglar af tegundum sem eru ekki skrautjurtir, t.d. rabarbara og spergli.