Flokkur 01 Lifandi dýr; vörur úr dýraríkinu

Kafli 05 Vörur úr dýraríkinu, ót.a.

Athugasemdir flokks

FLOKKUR I
Lifandi dýr; vörur úr dýraríkinu

Athugasemdir:

1. Með tiltekinni ættkvísl eða tegund dýra í þessum flokki er átt við afkvæmi þeirrar ættkvíslar eða tegundar leiði ekki annað af samhenginu.
2. Hvarvetna í tollskránni tekur orðið þurrkað til vara sem hafa verið vatnssneyddar, eimaðar eða frostþurrkaðar leiði ekki annað af samhenginu.
Athugasemdir kafla

5. KAFLI
Vörur úr dýraríkinu, ót.a.
 

Athugasemdir:

1.   Til þessa kafla telst ekki:

a. Ætar vörur (þó ekki þarmar, blöðrur og magar úr dýrum, heilt og í stykkjum, og dýrablóð, fljótandi eða þurrkað).
b. Húðir eða skinn (þar með talin loðskinn), þó ekki vörur sem teljast til nr. 0505 og af­klippur og áþekkur úrgangur úr óunnum húðum eða skinnum sem telst til nr. 0511 (41. eða 43. kafli).
c. Spunaefni úr dýraríkinu, þó ekki hrosshár og hrosshársúrgangur (flokkur XI).
d. Tilbúin knippi eða vöndlar til framleiðslu á sópum eða burstum (nr. 9603).

2.   Hár, flokkað eftir lengd, telst óunnið samkvæmt nr. 0501 (enda hafi rótar- eða hárendum ekki verið raðað saman).

3.   Hvarvetna í tollskránni er með fílabeini átt við vígtennur úr fílum, [flóðhestum]1 , rostungum, náhvelum og villisvínum, horn af nashyrningum og tennur úr öllum dýrum.

4.   [Hvarvetna í tollskránni er með hrosshári átt við hár af makka eða svíra og tagli eða hala dýra sem teljast til hrossa- eða nautgripaætta. Til vöruliðar 0511 telst m.a. hrosshár og hrosshársúrgangur, einnig í lögum með eða án burðarefnis.]2

1 Sbr. a-lið 4. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 126/2001 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 18. desember 2001).
2 Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármálaráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2017

0501
Mannshár, óunnið, einnig þvegið eða hreinsað, úrgangur úr mannshári

Hleður tollskrárnúmerum...

0502
Burstir eða hár af grísum, alisvínum eða villisvínum; greifingjahár og annað hár til burstagerðar; úrgangur af slíkum burstum eða hári:

Hleður tollskrárnúmerum...

0504
Þarmar, blöðrur og magar úr dýrum (þó ekki úr fiski), heilt og í stykkjum, nýtt, kælt, fryst, saltað, í saltlegi, þurrkað eða reykt:

Hleður tollskrárnúmerum...

0505
Hamir og aðrir hlutar af fuglum með tilheyrandi fjöðrum eða dún, fjaðrir og hlutar af fjöðrum (einnig með jöfnuðum jöðrum) og dúnn, ekki frekar unnið en hreinsað, sótthreinsað eða varið skemmdum; duft og úrgangur af fjöðrum eða fjaðrahlutum:

Hleður tollskrárnúmerum...

0506
Bein og hornsló, óunnið, fitusneytt, lauslega forunnið (en ekki tilskorið), sýrumeðfarið eða gelatínsneytt; duft og úrgangur úr þessum vörum:

Hleður tollskrárnúmerum...

0507
Fílabein, skjaldbökuskeljar, hvalskíði og skíðishár, horn, hreindýrahorn, hófar og klaufir, neglur, klær og nef, óunnið eða lauslega forunnið en ekki tilskorið; duft og úrgangur úr þessum vörum:

Hleður tollskrárnúmerum...

0508
Kórallar og áþekk efni, óunnið eða lauslega forunnið en ekki frekar unnið; skeljar lindýra, krabbadýra eða skrápdýra og kolkrabbabein, óunnið eða lauslega forunnið en ekki tilskorið, duft og úrgangur úr þessum vörum

Hleður tollskrárnúmerum...

0510
Ambra, bifurbelgur, desmerkattardeig og moskus; spanskflugur; gall, einnig þurrkað; kirtlar og aðrar vörur úr dýraríkinu sem notaðar eru við framleiðslu á vörum til lækninga, nýjar, kældar, frystar eða á annan hátt varðar til bráðabirgða gegn skemmdum

Hleður tollskrárnúmerum...

0511
Vörur úr dýraríkinu, ót.a.; dauð dýr í 1. eða 3. kafla, óhæf til manneldis:

Hleður tollskrárnúmerum...