Kafli 04 Mjólkurafurðir; fuglaegg; náttúrlegt hunang; ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.
Athugasemdir flokks
FLOKKUR I
Lifandi dýr; vörur úr dýraríkinu
Athugasemdir:
| 1. | Með tiltekinni ættkvísl eða tegund dýra í þessum flokki er átt við afkvæmi þeirrar ættkvíslar eða tegundar leiði ekki annað af samhenginu. |
| 2. | Hvarvetna í tollskránni tekur orðið þurrkað til vara sem hafa verið vatnssneyddar, eimaðar eða frostþurrkaðar leiði ekki annað af samhenginu. |
Athugasemdir kafla
4. KAFLI
Mjólkurafurðir; fuglaegg; náttúrlegt hunang; ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.
Athugasemdir:
1. Sem mjólk telst nýmjólk eða fleytt mjólk að hluta eða öllu leyti.
[2. Jógúrt í nr. 0403 má vera kjörnuð eða bragðbætt og innihalda viðbættan sykur eða önnur sætiefni, ávexti, kakaó, súkkulaði, krydd, kaffi eða kaffikjarna, jurtir, jurtahluta, korn eða bakaravörur, að því tilskildu að viðbætt efni séu ekki notuð í þeim tilgangi að koma að hluta eða öllu leyti í stað efnisþátta mjólkur og framleiðsluvaran halda að verulegu leyti einkennum jógúrtar.][1]
[3.][2] Í nr. 0405 er með:
a. Smjöri átt við náttúrlegt smjör, mysusmjör eða samsett smjör (nýtt, saltað eða þræsið, þar með talið smjör í dósum) sem unnið er eingöngu úr mjólk, sem inniheldur mjólkurfitu sem er meira en 80% en ekki meira en 95% miðað við þyngd, föst mjólkurefni án fitu að hámarki 2% miðað við þyngd og vatn að hámarki 16% miðað við þyngd. Smjör inniheldur ekki viðbætt bindiefni, en getur innihaldið natríumklóríð, matarlit, hlutleysandi sölt og ræktaða skaðlausa gerla sem gefa af sér mjólkursýru.
b. Mjólkurviðbiti átt við smyrjanlega þeytu af gerðinni ,,vatn í olíu¿, sem inniheldur mjólkurfitu sem einu fitu í vörunni, með mjólkurfituinnihaldi sem er 39% eða meira en minna en 80% miðað við þyngd.
[4.][3] Vörur sem fengnar eru með þykkingu mysu og með íblöndun mjólkur eða mjólkurfitu skulu flokkaðar sem ostur í nr. 0406 enda sé eftirfarandi þrennt einkennandi fyrir þær:
a. Fituinnihald sem er 5% eða meira miðað við þyngd þurrefnisins.
b. Þurrefnisinnihald sem er miðað við þyngd að minnsta kosti 70% en ekki meira en 85%.
c. Þær séu mótaðar eða mótanlegar.
[5.][4] Til þessa kafla telst ekki:
[a. Dauð skordýr, óhæf til manneldis (nr. 0511).][5]
[b.][6] Vörur fengnar úr mysu sem innihalda miðað við þyngd þurrefnis meira en 95% af laktósa og nefndar eru vatnsfrír laktósi (nr. 1702); [...][7]
[c.][8] Vörur fengnar úr mjólk með því að skipta út einum eða fleiri náttúrulegum þáttum hennar (t.d. mjólkurfitu) fyrir aðra þætti (t.d. jurtafitu) (vöruliðir 1901 eða 2106); eða
[d.][9] Albúmín (þar með talið kirni tveggja eða fleiri mysupróteína sem innihalda miðað við þyngd þurrefnis meira en 80% af mysupróteínum) (nr. 3502) eða glóbúlín (nr. 3504).
[6. Með skordýrum í nr. 0410 er átt við æt dauð skordýr, heil eða í hlutum, ný, kæld, fryst, þurrkuð, reykt, söltuð eða í saltlegi, svo og skordýramjöl, fín- eða grófmalað, hæft til manneldis. Nr. 0410 tekur þó ekki til dauðra skordýra sem hafa verið unnin eða varin skemmdum á annan hátt (almennt flokkur IV).][10]
[1] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[2] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[3] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[4] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[5] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[6] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[7] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[8] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[9] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
[10] Sbr. 3. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022
0401
Mjólk og rjómi, þó ekki kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
Hleður tollskrárnúmerum...
0402
Mjólk og rjómi, kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
Hleður tollskrárnúmerum...
0403
Jógúrt; áfir, hleypt mjólk og rjómi, kefír og önnur gerjuð eða sýrð mjólk og rjómi, einnig kjarnað eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni eða bragðbætt eða með viðbættum ávöxtum, hnetum eða kakaói:
Hleður tollskrárnúmerum...
0404
Mysa, einnig kjörnuð eða með viðbættum sykri eða öðru sætiefni; vörur úr náttúrlegum efnisþáttum mjólkur, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni, ót.a.:
Hleður tollskrárnúmerum...
0405
Smjör og önnur fita og olía fengið úr mjólk; mjólkur-viðbit:
Hleður tollskrárnúmerum...
0406
Ostur og ystingur:
Hleður tollskrárnúmerum...
0407
Fuglsegg, í skurn, ný, varin skemmdum eða soðin
Hleður tollskrárnúmerum...
0408
Fuglsegg, skurnlaus, og eggjarauða, nýtt, þurrkað, soðið í gufu eða vatni, mótað, fryst eða varið skemmdum með öðrum hætti, einnig með viðbættum sykri eða öðru sætiefni:
Hleður tollskrárnúmerum...
0409
Náttúrlegt hunang
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
0410
Skordýr og aðrar ætar vörur úr dýraríkinu, ót.a.:
Athugasemdir
Hleður tollskrárnúmerum...
Athugasemdir