Flokkur 01 Lifandi dýr; vörur úr dýraríkinu

Kafli 03 Fiskur og krabbadýr, lindýr og aðrir vatna- og sjávarhryggleysingjar

Athugasemdir flokks

FLOKKUR I
Lifandi dýr; vörur úr dýraríkinu

Athugasemdir:

1. Með tiltekinni ættkvísl eða tegund dýra í þessum flokki er átt við afkvæmi þeirrar ættkvíslar eða tegundar leiði ekki annað af samhenginu.
2. Hvarvetna í tollskránni tekur orðið þurrkað til vara sem hafa verið vatnssneyddar, eimaðar eða frostþurrkaðar leiði ekki annað af samhenginu.
Athugasemdir kafla

3. KAFLI
Fiskur og krabbadýr, lindýr og aðrir vatna- og sjávarhryggleysingjar

 

Athugasemdir:

1.      Til þessa kafla telst ekki:

a.      Spendýr í nr. 0106.

b.      Kjöt af spendýrum í nr. 0106 (nr. 0208 eða 0210).

c.      Fiskur ([þar með talið lifur, hrogn og svil][1]), krabbadýr, lindýr eða aðrir vatna- og sjávarhrygg­leysingjar, dautt og óhæft eða hentar ekki til manneldis vegna tegundar eða ástands (5. kafli); mjöl, einnig fínmalað, eða kögglar úr fiski eða krabbadýrum, lindýrum eða öðrum vatna- eða sjávarhryggleysingjum, óhæft til manneldis (nr. 2301).

d.      Kavíar eða kavíarlíki unnið úr hrognum (nr. 1604).

2.      Sem kögglar í þessum kafla teljast vörur sem mótaðar hafa verið annað hvort beint með þjöppun eða með lítils háttar íblöndun bindiefna.

[3.     Nr. 0305 til 0308 tekur ekki til mjöls, fín- eða grófmalaðs mjöls, og köggla, sem hæft er til manneldis.][2]



[1] Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 123/2016 (A-deild Stjórnartíðinda, gildistökudagur 1. janúar 2017).

[2] Sbr. 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

0301
Lifandi fiskur:

Hleður tollskrárnúmerum...

0302
Fiskur, nýr eða kældur, þó ekki fiskflök og annað fiskkjöt í nr. 0304:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 0302.6917 fellur niður.Sbr. a-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar nr. 169/2002 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 30. desember 2002).

Hleður tollskrárnúmerum...

0303
Fiskur, frystur, þó ekki fiskflök og annað fiskkjöt í nr. 0304:
Athugasemdir
Tollskrárnúmer 0303.7919 fellur niður. Sbr. c-lið 2. tl. 1.gr. auglýsingar nr. 169/2002 (A-deild Stjórnartíðinda, útgáfudagur 30. desember 2002).

Hleður tollskrárnúmerum...

0304
Fiskflök og annað fiskkjöt (einnig hakkað), nýtt, kælt eða fryst:

Hleður tollskrárnúmerum...

0305
Fiskur, þurrkaður, saltaður eða í saltlegi; reyktur fiskur, einnig soðinn á undan eða jafnhliða reykingu:
Athugasemdir
Sbr. l-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

0306
Krabbadýr, einnig í skel, lifandi, ný, kæld, fryst, þurrk-uð, söltuð eða í saltlegi; reykt krabbadýr, í skel eða skelflett, hvort sem þau eru soðin fyrir eða við reykingu; krabbadýr, í skel, soðin í gufu eða vatni, einnig kæld, fryst, þurrkuð, söltuð eða í saltlegi:
Athugasemdir
Sbr. n-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

0307
Lindýr, einnig í skel, lifandi, fersk, kæld, fryst, þurrkuð, söltuð eða í saltlegi; reykt lindýr, einnig í skel eða skelflett hvort sem þau eru soðin fyrir eða við reykingu:
Athugasemdir
Sbr. q-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

0308
Vatna- og sjávarhryggleysingjar aðrir en krabbadýr og lindýr, lifandi, ferskir, kældir, frystir, þurrkaðir, saltaðir eða í saltlegi; reyktir vatna- og sjávarhryggleysingjar aðrir en krabbadýr og lindýr hvort sem þeir eru soðnir fyrir eða við reykingu:
Athugasemdir
Sbr. t-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...

0309
Mjöl, fín- eða grófmalað, og kögglar úr fiski, krabbadýrum, lindýrum og öðrum vatna- og sjávarhryggleysingjum, hæft til manneldis:
Athugasemdir
Sbr. u-lið 2. tl. 1. gr. auglýsingar Fjármála og efnahagsráðuneytisins um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, gildistökudagur 1. janúar 2022

Hleður tollskrárnúmerum...